|
|
10.03.2007 09:56:29 / Fannsa
2A145C0C6CFD82B0C49A9EF81B6E3250
»
26.04.2006 08:13:36 / Fannsa
Eins og annað fólk í prófum mun ég smátt og smátt færa mig
alfarið yfir á:
http://www.fanney.blog.is
»
26.04.2006 07:58:16 / Fannsa
Guð minn góður. Jeremías á jólaskónum. Alla malla kalla. Og
allir hinir.
Titanic 2 kemur í sumar. Frábær mynd eflaust *hóst* þar sem Jack
finnst frosinn í klaka og er færður uppá yfirborðið og þýddur með
nýjustu tækni og vísindum *hóst*. Auðvitað fer hann svo að leita að
Rose, sem þá er um hundrað ára gömul (án þess að ýkja) og kemst svo
að því að hún sé dáin. Hvað gera bændur þá? Jú, þeir fara á
Broadway á söngleikinn Titanic og sofa hjá einhverri túttu sem þeir
finna úti á götu. Ef þetta er ekki mynd sem ég ætla að horfa á þá
skal ég hundur heita. Þessi formúla getur ekki klikkað *hóst*!!
Sjá myndbrot hérna: http://fatpita.net/vid.php?id=titanic2.htm
»
25.04.2006 15:04:43 / Fannsa
| Your Career Type:
Social |
You are helpful, friendly, and
trustworthy.
Your talents lie in teaching, nursing, giving information, and
solving social problems.
You would make an excellent:
Counselor - Dental Hygienist - Librarian
Nurse - Parole Officer - Personal Trainer
Physical Therapist - Social Worker - Teacher
The worst career options for your are realistic careers, like
truck driver or farmer. |
»
21.04.2006 10:56:10 / Fannsa
Veldu mánuðinn sem þú fæddist
Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember- Ég kúkaði á
Veldu núna afmælisdaginn þinn
1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asíksum skiptinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Stein
16. DVD spilara
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskipting
27. Yddara
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal
30. Tappatogara
31. Prentara
Veldu Þriðja stafinn í eftirnafninu þínu
A- Af því að ég elska súkkulaði
B- Af því að mér leiddist
C- Af því að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að ég þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tveimur nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Af því mér finnst egg góð
H- Af því að ég er á sýru
I- Af því ég misteig mig
J- Af því ég er með vörtu
K- Af því mér líkar Cheer
L- Af því að ég var skökk/skakkur
M- Af því ég var full/ur
N- Af því að mamma sagði mér að gera það
O- Af því ég er hýr
P- Af því ér er einmanna
Q- Af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Af því að ég er gröð/graður
S- Af því mig langar að deyja
T- Af því ég hata skóla
U- Af því ég þarf að fróa mér
V- Af því að ég elska náttfataparty
W- Af því að það róar mig
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Af því að ég elska prump
Ö- Af því ég er að safna rassahárum
Ég skaut kynskipting af því að mamma sagði mér að gera
það...
»
19.04.2006 09:43:15 / Fannsa
Höfuðborgin tók vel á móti kellingunni... búið að vera næææææs
veður sem ég hef reyndar ekki nýtt sem skyldi. Hef þó farið í
göngutúra og er á leiðinni í sund núna. Ætli áralöng hefði verði
brotin á morgun og það snjói ekki?
Annars er ég busy as hell þessa dagana - við allt annað en skólann
held ég. Sat minn fyrsta fund í gær sem ritari framkvæmdarstjórnar
LÆF (www.youth.is) sem var bara gaman. Tók að mér það
stóráhugaverða hlutverk að sitja í nefnd á vegum
Menntamálaráðuneytisins um Evrópuverkefni sem heitir All equal, all
different og er 1 1/2 árs átak til að berjast gegn fordómum. Verður
eflaust mjög áhugavert og skemmtilegt. Á föstudaginn erum við Dagný
foxxxy að fara til Njarðvíkur að leggja BA-rannsóknina okkar fyrir
10. bekkinn þar. Langt síðan ég kom til Njarðvíkur þannig að þetta
verður gaman. Seinnipartinn á föstudaginn er ég svo að fara í rútu
fullri af gelgjum norður á Akureyri þar sem ég verð forráðamaður
systur minnar á blakmóti. Það verður örugglega mjög athyglisverð
ferð. Ég er þó búin að bóka viðtal hjá Kónginum á KEA og ætla að
reyna að kíkja á fleiri góða kosti þarna nyðra. Slæmt er þó að
enginn verður bíllinn hjá mér þannig að ferðir mínar munu taka 4
sinnum lengri tíma en ella.
Á mánudaginn erum við Dagný foxxxy svo að leggja rannsóknina fyrir
10. bekkinn í Ólafsvík sem verður gaman. Þá verð ég líkast til
svipuð og þegar við fórum norður.. "awwww, sjáðu hérna, hérna átti
þessi heima"... aumingja Dagný mín.. Miðvikudagurinn verður þó
aðeins rólegri, en þá erum við bókaðar í Breiðholtsskóla.
Svo má ekki gleyma að inná milli þessara ferða er ég að gera
ritgerð, verkefni og læra undir 2 próf, læra undir táknmálstímana,
stunda Röskvulifnað og UJ-lifnað og vera ég sjálf...
Svakalega hlakka ég til sumarsins!
»
16.04.2006 21:35:20 / Fannsa
Þvílíkir snilldarþættir sem Sjálfstætt fólk er og vá hvað Jón
Ársæll er góður sjónvarpsmaður. Var að horfa á þáttinn áðan þar sem
hann ræddi við Óskar Bergmann Albertsson sem er mjög lágvaxinn og
þroskaheftur maður sem vinnur í Ásgarði. Þessi Óskar er algjört
gull og átti hvert snilldarkommentið á fætur öðru. Best var samt
þegar hann fór í Herra Hafnafjörð að versla sér jakkaföt, en hann
gengur í slíkum alla daga og safnar bindum og skyrtum, þá kom
afgreiðslumaðurinn með föt til hans sem hann og mátaði. Þá rataðist
honum á munn: Það er alltaf svo gaman þegar það er fermingartíminn,
þá fæ ég loksins föt í mínu sniði!
Ég brosti allan þáttinn og fékk flash back frá síðasta sumri þegar
ég var á Sólheimum. Mikið óskaplega á ég eftir að sakna allra þar,
þessir yndislegu vinir mínir þarna kunna sko betur að lifa en
margur annar. Núna verður það sett á forgangslistann minn að kíkja
í heimsókn í Paradís Íslands, Sólheima.
»
16.04.2006 14:52:21 / Fannsa
Kæru vinir nær og fjær..
Gleðilega páska og góðar
stundir!
Vaknaði í morgun við knús frá lil sys.. hún faldi eggið mitt en ég
var óvenju snögg að finna það í erminni á einni af úlpunum hennar
mömmu. Ég bjó til ratleik fyrir lil sys og hún var í uþb 1 1/2 tíma
að leita að egginu sínu sem var í háum blómapotti, úr hennar
seilingarfjarlægð  Alltaf hressandi að vakan og þurfa að
leita að þessum eggjum. Málshátturinn minn: Annars byrði er öðrum
létt.
Ég fékk frábæra heimsókn í gærkvöldi en Bauninn hún Ída mín kíkti á
gömlu konuna. Ég er svo meðvirk... ég verð alltaf veik fyrir því að
fara til Köben eftir að hafa hitt hana. Ótrúlega langar mig samt
núna, þó það væri bara yfir eina helgi! En við spjölluðum heilmikið
og það er alltaf gaman að sjá þessa elsku "stóru systur mína" þegar
hún er á landinu. Svo er hún svo klár, var að fá námsstyrk frá
gaurnum sem á Maersk.. Ég er ótrúlega stolt af henni! Fyrr en varir
verður hún orðin Dr. Ída
Dagurinn í dag hefur að mestu farið fram fyrir framan sjónvarpið
þar sem ég horfði á þátt um Gíneu-Bissá og komst að því að 1 af
hverjum 5 börnum deyja fyrir 5 ára aldur. Svo horfði ég líka á þátt
um Jörðina þar sem ýmis skringileg dýr voru til sýnis. Sem minnir
mig á það.. hafði pælt í því að í orðinu Earth er orðið Ear eða eyra? Til er þjóðsaga hjá
heyrnarlausum þar sem þeir fara til Eyuth en það er sagt alveg eins og
Earth. Þetta er týpískt
hvernig við sem skynjum öðruvísi en heyrnarlausir. Hljóðið er alveg
eins, en sjónskynjunin önnur. En allavegana þá poppaði þetta allt í
einu uppí hugann.. ætla að reyna koma einhverju niður á blað,
gengur ekkert alltof vel 
»
15.04.2006 18:51:09 / Fannsa
Hvers vegna er ég svona andlaus þessa dagana? Ég er búin að lesa og
lesa og lesa heimildir fyrir ritgerðina mína, en ég virðist ekki
geta komið þessari nýfengnu visku niður á blaðið hjá mér. Samt er
ég alveg með það á hreinu hvernig ég ætla að hafa ritgerðina, hvaða
línu ég ætla að taka og hvaða spurningum ég ætla að svara...
merkilegt nokk.
Annars kíkti ég út á tjúttið í gær. Mér var boðið í nýju íbúðina
hjá Þórey túttu og þar sátum við í mjööööög góðu yfirlæti, sötruðum
Breezer, G&T og hvítvín og jöpluðum á ostum, konfekti og nachos
ídýfu.. jömmí! Brunuðum svo inní Grundarfjörð þar sem Sixties var
að spila á Kristjáni IX. Anna Jobba er alltaf hress og frábær sem
og öll Jobba fjölskyldan. Það leynir sér heldur ekki hversu vel
fólki líður þarna því staðurinn var pakkaður! Frábært að hitta
svona mikið að fólki sem ég hef ekki séð lengi. T.d. hitti ég þarna
Rúnu fallegu Jobba, Tomma kallinn hennar, litlu frændur mína (sem
eru víst ekkert svo litlir ennþá) og síðast en engan veginn síst:
Sigurrósu "frænku". Já, Röskvusnótin fríða sem situr nú í
Háskólaráði var mætt í pleisið, enda býr pabbi hennar í firðinum
fríða. Við áttum ansi góð móment á dansgólfinu og vöktum vafalaust
mikla athygli fyrir n.k. ljótudansatakta...  Á leiðinni heim varð
ég voða tilfinningarík, hlustaði á Jónsa minn syngja, helmingurinn
af liðinu aftur í var sofandi en ég sat og skrifaði persónuleg sms
til margra góðkunningja minna..
Komst víst ekkert á Jökulinn í dag, það var sól og næs hérna niðri
en ekkert skyggni þarna uppi. Taka tvö á morgun, spáir samt
snjókomu en ég vona að ég geti að minnsta kosti kíkt í kaffibolla
uppá stórkostlega fjallið mitt, Snæfellsjökul.
Lag dagsins í dag: Insomnia
með Electric President
Hlutur dagsins í dag: gömul
svört og silfurlituð hárspöng sem mamma keypti í kringum 1990.
»
14.04.2006 11:15:06 / Fannsa
Ég er komin heim í víkina góðu er Ólafur belgur nam forðum
daga. Mamma var búin að elda þennan þvílíka góða kjúklingarétt
þegar ég kom, með doritos, chili baunum og öllu tilheyrandi 
Horfði svo á stelpumynd í gær, In her shoes minnir mig að hún
heiti. Hún var alveg ágæt, náði að tengja mig smá við eina persónu
í myndinni og það er alltaf hressandi
En þar sem margir misstu af greininni minni í Lesbók Moggans
síðasta laugardag ætla ég að birta hana hérna - fyrir ykkur sem
viljið lesa þetta.
Um daginn sat ég á málþingi uppí HÍ þar sem
umræðuefnið var menning heyrnarlausra. Slíkt málþing hefur aldrei
áður verið haldið hérlendis og var því um stórviðburð að ræða. Enga
fjölmiðla sá ég á svæðinu og finnst mér það til skammar hversu
lítinn áhuga fjölmiðlar (og aðrir) sýna menningu heyrnarlausra og
heyrnarlausum almennt. Mér finnst mikil fáviska vera meðal heyrandi
fólks um landa sína sem ekki heyra. Margir telja að enga menningu
sé að finna í samfélagi heyrnarlausra og það hljóti bara að vera
leiðinlegt að heyra ekki. En raunin er önnur. Meðal heyrnarlausra
blómstrar menning líkt og í öðrum samfélgöum og flestir
heyrnarlausir sem ég þekki vilja ekki fá heyrn, enda þekkja þeir
mun betur inná sitt eigið samfélag heldur en heyrandi
samfélag.
Það hlýtur þó að vera erfitt að búa í litlu
samfélagi, eins og Íslandi, þar sem tungumál manns er ekki
viðurkennt. Ef við viðurkennum ekki tungumálið, getum við þá
viðurkennt einstaklinginn sem talar það tungumál? Á meðan sænska
þjóðin heldur uppá 25 ára afmæli sænska táknmálsins sem móðurmáls í
Svíþjóð hefur íslenska þjóðin ekki enn viðurkennt íslenska
táknmálið sem móðurmál hérlendis. Heyrnarlausir einstaklingar eru
stoltir af uppruna sínum og móðurmáli, táknmálinu, líkt og við
heyrandi og íslenskutalandi erum stolt af okkar uppruna og
íslenskunni okkar. Þar sem aðeins lítill hluti Íslendinga tala
táknmál geta samskipti milli þessara tveggja hópa oft verið erfið
og því kannski auðveldast að sleppa þeim bara.
Heyrnarlausir hafa í aldanna rás búið við kúgun
hins heyrandi heims og tel ég lítið lát vera þar á. Vissulega hefur
eitthvað breyst til batnaðar en alls ekki nóg. Í könnun sem unnin
var fyrir Félagsmálaráðuneytið árið 2004 kom fram að heyrnarlausir
búa enn í dag við félagslega einangrun – líka hérna á Íslandi.
Samskipti heyrnarlausa við heyrandi eru skammarlega lítil og hverju
er um að kenna? Eins og áður sagði eru fáir Íslendingar sem tala
táknmál og því lítið um samskipti utan samfélags heyrnarlausra. Ég
tel að í öllum grunnskólum landsins ætti að vera boðið uppá táknmál
sem valnámskeið, ef ekki bara skyldunámskeið. Með því gætu allir
borgarar þessa lands fengið grunn í íslensku táknmáli og lært á tjá
sig við landa sína sem ekki tala íslensku. Táknmál er kennt í
örfáum framhaldsskólum en sú kennsla sem þar fer fram er skref í
rétta átt. En betur má ef duga skal.
Frumvarp til laga um táknmálið sem fyrsta mál
heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra hefur enn ekki fengið
þá umræðu sem það á skilið inni á Alþingi þrátt fyrir að hafa fyrst
verið lagt fram Alþingisárið 2003-2004. Lítið sem ekkert hefur
komið útúr þeim nefndum sem áttu að skoða málefni heyrnarlausra.
Heyrnarlausir fá einungis 8 mínútna fréttatíma dag hvern. Hversu
lengi á þetta að ganga svona? Mér finnst mál til komið að við förum
að sparka í rassinn á okkur og gera eitthvað í málunum. Ég skora á
heyrandi Íslendinga að líta í eigin barm og ímynda sér þann
veruleika ef tungumál ykkar væri ekki viðurkennt af meirihluta
þjóðarinnar. Viðurkennum alla Íslendinga!
»
12.04.2006 18:23:55 / Fannsa
Í dag er ég búin að:
- Vakna kl. 06:12 við sms frá Guðnýju sem er á leið til Ítalíu:
Ég sá bróðir þinn á
flugvellinum.
- Sofa út til kl. 10:00.
- Lesa blöðin og fá mér kaffi og skyr.
- Fara í sund í rúma 2 klukkutíma þar sem ég hitti Heiðrúnu
frænku og men hvað við gátum spjallað og slúðrað... ég fékk meira
að segja smá lit skal ég segja ykkur og verð því með rauðar
eplakinnar í kvöld.
- Fá mér pulsu í Laugardalnum og Fresca.
- Fara á skrifstofuna til Ellu frænku og fletta yfir Séð og
heyrt, en þar hitti ég einmitt Unni kærustuna hans Sindra frænda.
Hún var að opna sýningu á Sólon og hvet ég ykkur til þess að kíkja
á hana næsa mánuðinn. Hún er mjög hæfileikarík og sæt

- Fara og ná í 1 líter af Vodka til Betu.
- Fara í Bónus úti á Nesi þar sem var röð á ALLA kassana lengst
inní búð, ca klukkutímabið í þjónustu.. en það var allt í lagi, ég
sá Björn Jörund, blikkaði hann og labbaði út.
- Fara í Hagkaup úti á Nesi og kaupa plastskotglös og gjöf fyrir
Tinnu.
- Fara í 10-11 á Stúdentagörðunum því ég gleymdi að kaupa Jelly
efnið í Jelly skotin sem ég ætlaði að gera.
- Koma við hjá Tinnu minni og gefa henni gjöfina og páskaegg. Hún
var að læra.
- Afhára mig fyrir tjúttið í kvöld.
- Bera á mig endalaust mikið af bodylotion.
- Búa til 50 Jellyskot fyrir kvöldið.
- Setja myndavélina og símann í hleðslu fyrir kvöldið.
- Setja í þvottavél og taka úr henni.
- Svara um það bil 40 símtölum og nokkrum sms-um.
- Hringja um það bil 20 símtöl og senda nokkur sms.
- Skrifa um það bil 13 tölvupósta.
- Skoða flest blogg félaga minna auk annarra daglegra rúnta
(pólitík.is, Röskvan, Mbl, snb.is....)
- Ákveða í hvaða fötum ég ætla að fara í kvöld.
- Klæða mig í dressið og laga hárið.
Já, svona hljómar síðasti dagur minn sem formaður Mentors... ætli
álagið minnki eitthvað við það að ég læt titilinn frá mér?
Sé ykkur í kvöld á "lífinu"... fer vestur á morgun og kem aftur
suður á þriðjudaginn, líkast til...
»
10.04.2006 18:17:54 / Fannsa
Ekki dugar mér að vera eingöngu á netsíðum heldur hef ég hafið
útrás mína í fjölmiðla landsins. Já, túttan var með ansi fínan
pistil í Lesbók Moggans núna á laugardaginn og hvet ég lesendur
mína til að kíkja á hann. Frekar sexý pistill að mínu mati.
Nú svo er ég farin að halda hin geysivinsælu daðursnámskeið aftur
sem slógu í gegn í félagsráðgjafarferðinni á síðustu önn. Var með
eitt slíkt á árshátíð Röskvu núna um helgina við mikla eftirtekt.
Ég er ekki frá því að ég eigi smá hlut í nokkrum hösslum þarna
þetta kvöld ha! Kellingin alveg að meika það þessa dagana já.. En
árshátíðin var annars frábær, maturinn sjúklega góður enda var það
enginn annar en Daddi Dínó sem eldaði  Ég held ég geymi nú
sögurnar fyrir persónuleg samtöl.. en ég kíkti líka á Rosenberg þar
sem nýja uppáhalds hljómsveitin mín var að spila
(www.myspace.com/hraunhraun) og ég fékk m.a.s. óskalag
(Ghostbusters í n.k. reggí útgáfu.. mjööööög töff). Auðvitað kíkti
ég á Kofann að tékka á börnunum þar en endaði á Hressó.. mjög
spooky.
Mætti svo fersk í dag á skorarfund með kennurum kl. 10:00 þar sem
það var hlegið að mér um leið og ég gekk inní salinn. Fundurinn
byrjaði víst kl. 9:00 og kláraðist kl. 10:10... mjög stuttur fundur
hjá mér sem sagt..
»
07.04.2006 09:52:24 / Fannsa
Nú er loksins komið að því. Eftir nokkura mánaða syrpu þar sem
blöðin vilja æst hafa myndir af mér er nú loksins komið að því. Ég
er orðin fræg!
(http://www.politik.is)
»
06.04.2006 11:16:57 / Fannsa
Ég átti svo stórkostlegan dag í gær að það er ekki einu sinni
fyndið! Var vöknuð fyrir kl. 7 í gærmorgun, enda átti kellingin
flug til Akureyrar *awww* kl. 7:45. Tilgangur ferðarinnar: leggja
BA-rannsóknina okkar Dagnýjar foxxxy fyrir 10. bekk í Glerárskóla.
Ókyrrð í lofti gerir lítið annað en vekja mann smá í morgunsárið og
þegar við lentum á Eyrinn fallegu var þar sól og fallegt veður -
auðvitað! Leigðum okkur bílaleigubíl á 1540 kr daginn og skunduðum
í Bakaríið við brúna í morgunmat *awww*. Eftir það rúntuðum við smá
um bæinn og ég rifjaði upp ýmsar skemmtilegar og óskemmtilegar
sögur sem tengdust staðnum. Enduðum á því að stoppa á Heimavist MA
(og væntanlega VMA líka en það er annað mál) *awwww* og þar hitti
ég konurnar í þvottahúsinu og mötuneytinu sem og Meistara Simma
húsbónda *awwww*. Hann sýndi mér inní nýju hergbergin og það var
akkúrat eitt laust - svona ef ég skyldi verða veðurteppt  Við
Simmalingur rifjuðum upp góðar stundir síðan ég var á Vistinni sem
og nokkrar í móðu úr útskriftarferðinni *awww* og ekki má gleyma
Trompetlortinum. Simmi afhenti mér svo 3 orðabækur sem ég hafði
gleymt þarna þegar ég flutti af vistinni.. fyrir 7 árum!!! Góði
kallinn að geyma þær fyrir stelpuna sína. Auðvitað gat ég ekki
setið á mér að taka einn hring í skólanum þó svo ég þekkti afar
fáa. Endaði þó inní stofu hjá Einar landó þar sem hann kynnti mig
sem uppáhaldsnemandann sinn *awwww* og haldiði ekki að kallinn hafi
verið með mynd af Ólafsvík varpaða uppá tjald þarna - þvílík
tilviljun  Klessti svo nefinu á rúðuna hjá Völlu og ég held að
krakkarnir hafi fengið nýja sýn á hana við það... hehehe. Skundaði
um skólann og vinkaði inní stofur eins og ég væri Vigdís Finnboga.
Endaði á því að fara í Suður Sal í Gamla skóla þar sem Þorlákur
bauð mér inn og spurði hvort ég hefði örugglega ekki lært einhverja
félagsfræði í Háskólanum *awwww*. Þvínæst fórum við uppí
Glerárskóla að leggja könnunina fyrir í fyrsta skipti og gekk það
prýðisvel, svakalega gaman og spennandi 
Þegar ég er komið við sögu var komið hádegi og ekkert annað í
stöðunni en að bruna á Greifann í djúsí pepperoni pizzu *awww* enda
pepperoni-ið þar það besta! Eftir djúsí matinn þá var ekki annað
hægt en að koma við á Hótel KEA þar sem unaðurinn hann Svenni minn
ræður ríkjum *awwww* Mikið var nú gaman að hitta þennan fyrrum
sambýling minn. Ég fattaði það líka að við Svenni höfum þekkst í 9
ár, sem er nokkuð gott  Valla menntaskólakennari kom svo og varði
eyðunni sinni með okkur í nostalgíuumræðum *awwww* og aumingja
Dagný þurfti að upplifa þetta allt saman 
Eftir að hafa kjaftað í ca 2 klukkutíma við kónginn var tekið rölt
um "göngugötuna" sem er bara engin göngugata lengur heldur opin
fyrir umferð! Hneisa. Lítið var um stórkostleg föt í búðum
Akureyrar þannig við tókum rúnt og ég jesúsaði mig yfir allri
byggðinni sem er farin að koma ískyggilega nálægt Kjarnaskógi. Það
var ekki annað hægt en að koma við hjá Möggu vinkonu minni sem ég
kynntist þegar ég bjó úti á Spáni, en hún var að eignast sitt annað
barn á dögunum *awwww* og ég, Fanney Dóra, fékk sko að halda á
gripnum! Var alveg komin á það að mig langaði í eitt en þá mundi ég
eftir öllum fæðingarsögunum sem mínar elskulegu vinkonur og frænkur
hafa látið mér í té  Við sátum í góðu yfirlæti hjá Möggu þar til
við áttum flug um sexleytið. Ennþá meiri ókyrrð í loftinu á
leiðinni heim, en það var sko bara allt í lagi því ég var með bros
allan hringinn - og rúmlega það! Jiii, hvað ég elska Akureyri!
Í gærkvöldi var ég í svo miklum kúrí-horfa-á-sjónvarp-fíling að ég
skokkaði til Þóru og við flatmöguðum yfir Law and order: SVU sem
standa alltaf fyrir sínu. Þóra mín færði mér einnig gjöf (hint: ég
ELSKA að fá gjafir) en það var enginn annar en Mr. Perfect. Þegar
ég ýti á bringuna hans Samuels Perfect þá segir hann
eftirfarandi:
- The ball game
really isn´t that important, I´d rather spend time with
you.
- Let´s just
cuddle tonight!
- Actually, I´m
not sure wich way to go. I´ll turn in here and ask
directions.
- Here, you
take the remote, as long as I´m with you I don´t care what we
watch!
- You know
honey, why don´t you just relax and let me make dinner
tonight?
- Ohhhh, can´t
your mother stay another week?
Já, að hlaut að koma að því að ég næði mér í góðan kall
P.s. Gettu betur í kvöld.. spurning um að hafa hóp-horf þar sem
salurinn er fullur??
»
04.04.2006 13:33:53 / Fannsa
Ég er komin með kenningu. Er það sambærilegt að velja sér gardínur
og velja sér karlmann? Segir gardínuval eitthvað til um hvernig
karlmann viðkomandi (oftast kona) vill? Lítum á þetta nánar:
- Kona velur sér
blúndugardínur: hún er eflaust að leita að mjúkum manni,
tilfinningaríkum og jafnvel pínu vænmum. Það fer þó kannski eftir
lit á blúndu, hvít blúnda er mjög hefðbundið, svört blúnda frekar
óhefðbundið, bleik blúnda bara töff.
- Kona velur sér
myrkragardínur: hún er svolítið fyrir þungar týpur, þá er ég
ekki að tala um heavy weight gaura heldur svona þunga í skapinu,
jafnvel þunglynda. Kannski er konan líka spéhrædd og vill hafa
alveg dimmt í herberginu þegar hún afklæðist til svefns - en það er
önnur kennng.
- Kona velur sér
rimlagardínur: klárlega er konan að leita að mjög
hefðbundnum karlmanni, ekkert vesen og engar dúllur, bara klippt og
skorið. Svo má náttúrulega taka inní þetta að trérimlar eru meira
svona posh dæmi, kannski fyrir viðskiptafræðinga, en hvítir
plastrimlar meira svona fyrir listamenn.
- Kona velur sér
rúllugardínur: hún hefur voðalega lítinn tíma fyrir
karlmann, en það væri gott að hafa hann með inní myndinni. Hann má
þó ekki þvælast fyrir og verður að vera mjög meðfærilegur. Litur
skiptir ekki máli, enda er þetta ósýnilegt þegar maður er ekki að
nota það.
- Kona velur sér engar
gardínur: lesbísk.
- Þá má líka taka inní þetta að sídd á gardínum getur skipt máli.
Ef kona er ekki mikið fyrir að hafa síddina á hreinu, þá er henni
nokk sama um útlit karlmannsins sem hún nær sér í, hann dugar. Sé
kona með gardínur sem eru of síðar velur hún karlmanninn bara eftir
útlitinu og það er vesen, slíkt er alltaf fyrir manni. Einnig má
taka inní þetta þegar konur vilja hafa gardínurnar bundnar til
hliðanna eða settar saman með klemmum. Slíkar konur aðhyllast BDSM
eða kvalarlosta.
Hvað segiði? Er ég á réttir leið eða alveg að mygla á Bókhlöðunni?
»
Síður: 1 2 3 ... 21
|
|